18.03.2010 10:29:12 / gudrun

Kjólar og cup cakes!!

Hérna kemur smá til að kveikja aðeins í ykkur fyrir páskasaumóinn...

http://www.handmadekids.com.au/wp-content/uploads/2009/11/ollie-rose2.jpg
í .http://www.brooklyncake.com/wp-content/uploads/2009/06/cup_cakes_01.jpg





» 5 hafa sagt sína skoðun

22.02.2010 20:30:40 / gudrun fonn

Útskrift

Sælar skvísur

Þá er loksins komið að mér að útskrifast úr mínu endalausa námi :) Útskriftin verður á laugardaginn, 27.febrúar, og um kvöldið ætla ég að halda smá teiti fyrir uppáhalds vini mína :) Ykkur er að sjálfsögðu öllum boðið en teitið verður haldið í Ljósheimum 14a, Rvk. Ég býst nú ekki við því að þið sem erlendis búið sjáið ykkur fært að mæta, enda er ég heldur sein að senda út boðskort ;) en gaman væri að sjá einhverjar ykkar.

Bestu kveðjur úr snjósköflunum á Akureyri,

Guðrún Fönn (a.k.a Svöl)


» 9 hafa sagt sína skoðun

28.01.2010 13:46:33 / ola kally

Skemmtilegar spurningar

Jæja stelpur... svarið nú nokkrum spurningum, svona til gamans... :)

1. Hvað heitiru?
2. Varstu nefnd í höfuðið á einhverjum?
3. Hvar býrðu?
4. Hvar hittir þú maka þinn?
5. Áttu börn?
6. Hvern talaðir þú síðast við í síma?
7. Hvað er það fyrsta sem þú tekur eftir í fari fólks?
8. Uppáhaldsmatur?
9. Uppáhaldseftirréttur?
10. Hvaða bók ertu að lesa núna?
11. Hvaða mynd horfðir þú á síðast?
12. Uppáhalds íþrótt til að horfa á?
13. Hefur þú einhver sérstakan hæfileika?
14. Teygjustökk?
15. Ef þú myndir endurfæðast sem eitthvað dýr (annað en maður)?

» 6 hafa sagt sína skoðun

11.01.2010 14:41:38 / gudrun

Ný nefnd

Er ekki sniðugt að við skipum nýja nefnd sem kemur til með að skipuleggja Kápuhelgina 2010. Eigum við ekki að hafa það þannig að þeir sömu sjái ekki um það tvö ár í röð?  Ég gef mér bara að þið séuð sammála og lýsi eftir stúlkum sem vilja bjóða sig framí verkið, eru 2-3 ekki fínn fjöldi??

Hilsen G




» 6 hafa sagt sína skoðun

05.01.2010 16:43:24 / gudrun

Nýtt ár hjá Kápunum!

Gleðilegt ár elsku bestu og takk fyrir öll gömlu. Ég vona að nýja árið verði frábært hjá okkur öllum!!

Það var æðislegt að hittast hjá Helgu milli jóla og nýárs þó að auðvitað hafi vantað einhverjar eins og eðlilegt er.

Staðsetning Kápanna  2010 er e-n veginn svona:

Reykjavík og nágrenni: Óla Kallý, Þórhildur og Alís

Akureyri: Guðrún, Helga Björg, Guðrún Fönn, Hanna Björg og Alís (annað slagið a.m.k.)

Útlönd: Selma, Ása, Lára, Laufey

Þetta árið hefur Akureyrin því vinninginn og vonandi verðum við rosa duglegar að hittast, þið hinar eruð velkomnar hvenær sem e:haha:

Enn sem komið er hefur aðeins verið tilkynnt um eina fjölgun í hópnum, ég bíð spennt eftir fleiri...

Hlakka til að heyra;)

Bestu kveðjur,
Guðrún



» 6 hafa sagt sína skoðun

21.09.2009 21:15:41 / helga

Afmælisskvísa dagsins :)

Innilega til hamingju með daginn elsku besti Selmulingurinn okkar. Vonandi var dagurinn frábær! Hafðu það gott elskan.
Knús frá okkur öllum í Kápugenginu og auðvitað öllum fylgifiskunum líka! :*


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.09.2009 21:29:16 / gudrun

Vísurnar

Hæ, hér koma loksins vísurnar sem sem þið ortuð svo snilldarlega Kápuhelgina góðu :-)

Lið 1

Í Lundsskógi er megastuð,
mikið gaman, mikið fjör.
Kápur sveittar eftir puð,
í pottinum bráðna eins og smjör.

Kápur saman komnar eru
í Fönninni er megastuð
Eftir langa útiveru
Við borðum brauð og smjör


Lið 2

Kápur og kallar koma saman,
krakkar leika ofsa gaman.
Megastuð og mikið fjör,
marshmellows og hnetusmjör!

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.08.2009 12:39:51 / helga

Laufey Sigrún afmælisbarn dagsins :)

Elsku besta Laufey okkar.

Innilega til hamingju með daginn. Vonandi verður dagurinn frábær í alla staði. Förum svo vonandi að sjá þig á Íslandinu góða bráðlega.

Kossar og knús frá öllum kápunum þínum :*



» 6 hafa sagt sína skoðun

06.08.2009 10:43:33 / gudrun

Afmælisbarn dagsins

Elsku Lára okkar,
innilega til hamingju með daginn! Hafðu það sem best í dag og alla daga.
http://photos-h.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-snc1/hs092.snc1/4663_103628199611_782159611_2692687_1945619_n.jpg

Þínar Kápur

» 4 hafa sagt sína skoðun

24.07.2009 21:01:01 / ola kally

Myndir

Setti inn nokkrar myndir frá helginni inn á myndasöfn => Fönnin 2009 ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.07.2009 15:00:02 / ola kally

Kápulagið 2009 (lag: Ef þú giftist...)

1. Kápuhelgin komin er,

alveg eins og vera ber.

Því við fögnum, ó já því við fögnum

Því við fögnum hér

 

2. Við ætlum að segja ykkur frá

Því sem á daga okkar drífur á.

Svo hafið hljótt og hlustið bara á oss

Hlustið á oss nú.

 

3. Alís hún á Inga sinn

Og nýtur þess að kaupa inn

Lísa skvísa, býr til fína ísa

Leirunesti í

 

4. Ásu við köllum lögfræðing

hún nældi sér líka í útlending.

Vonum samt að flytji hún nú aftur,

flytji aftur heim!

 

5. Gunna nemur kennarann

og líka einkaþjálfarann.

Svo þeysist hún um á mótorhjóli,

hjóli sínu á


6. Guðrún Fönn hún læknar þá

Sem á Austfjörðum búa á

Svo ef að eitthvað amar að ykkur

Hringið hana í.

 

7. Hanna heklar og húsfreyjast,

þar til hún fer að leikskólast.

Í Hafnarstrætinu býr í fínu húsi

Húsi sínu í

 

8. Helga Björg er bissness-skvís

Sem elskar að borða Brynjuís

Svo þekkir hún alla, konur og kalla

Íslandinu á

 

9. Laufey með ljósu lokkana

Skilur eftir sig sokkana

Og dansar afró, dansar dansar afró

Afríkunni í

 

10. Lára flúði kreppuþjóð

Með Kela spókar sig hýr og rjóð

Lára klára, finnur fínan smára

Austurríki í

 

11. Óla kláraði masterinn

og nú ætlar hún í doktorinn

Doktor Óla, doktor Óla Kallý

Nartar gulrót í

 

12. Selma enn með baunum býr

En vonandi aftur til Íslands snýr

Elsku Selma, elsku besta Selma

Komdu aftur heim

 

13. Tóta tryllta er spilaóð

Og seint hún kallast letiblóð

Skjálftahrinur skelfa hana ekki,

skelfa hana ei.


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.07.2009 21:16:29 / gudrun fonn

Hellú

Hér kemur  nákvæm útlistun á svefnplássi:

Á neðri hæð eru 2 herbergi með tvíbreiðum rúmum (annað frátekið ;). Þar er einnig svefnsófi fyrir 2 (alls 6 fullorðnir).
Á efri hæð er svefnloft með einu tvíbreiðu rúmi, einu einbreiðu, tveimur tvíbreiðum vindsængum og einni einbreiðri dýnu (8 fullorðnir).

Í bústaðnum eru svo 2 gasgrill, eitt svona venjulegt og eitt lítið ferðagasgrill. Ef einhver á ferðagrill til að kippa með sér væri það fínt :)

Ef spurningar vakna endilega skellið þeim inn á síðuna eða bara hringið í mig (s: 694-6227). Móttökuritarinn minn svarar í símann milli 8 og 16 virka daga. DJÓK.

Ég er orðin rosa spennt fyrir þessari helgi, vonandi bara að það rætist úr veðurspánni :D

kv. Guðrún Fönn

» 3 hafa sagt sína skoðun

08.07.2009 15:28:27 / ola kally

9 dagar.. ójá :D

9 dagar í Kápufestivalet :D Hlökkum alveg endalaust til að sjá ykkur allar! Vildi bara setja niður nokkra minnispunkta handa ykkur :)

- Guðrún Fönn ætlar að mæta í bústaðinn á fimmtudagskvöldinu. Við Guðrún stefnum svo á að mæta uppúr hádegi á föstudeginum. Þið hinar megið svo bara koma hvenær sem er en formleg setning verður líklegast um kvöldmatarleytið ;)

- Muna að taka með sér eitthvað að borða. Við ætlum ekki að kaupa neinn mat nema drykki með kaffinu á laugardaginn og svo nammi og snakk. Endilega takið eitthvað með til að skella á grillið á fös og lau og eitthvað í púkkið með kaffinu á laugardag.

- Koma með drykki, ekki viljum við verða þyrst þarna ;)

- Það er pottur við bústaðinn þ.a. endilega takið með sundföt og handklæði!

- Held alveg örugglega að allir þurfi að koma með sængur/svefnpoka, er það ekki Guðrún Fönn?

- Guðrún og Aníta (og Hjörtur ef hann verður í landi) stefna á að tjalda og gista þar í tveggja svefnherbergja tjaldi, ef einhver hefur áhuga þá er sem sagt annað "herbergi" laust þar. Ég get vonandi komið með húsbíl mömmu og pabba og gist þar þ.a. það ætti að vera alveg nóg pláss í bústaðnum fyrir rest ;)

- Minni á leiðarlýsinguna og símanúmerið hennar GFT ef einhver villist ;)

- Að lokum vil ég minna á að borga, síðasta lagi fyrir mánudaginn 13.júlí

Fylgist svo bara vel með, við eigum eflaust eftir að smella inn enn meiri upplýsingum þegar nær dregur :D

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.07.2009 10:55:54 / ola kally

Money money money

Við þurfum víst að rukka ykkur aðeins :)

Við höfum ákveðið að verð fyrir helgina verði 2000kr á kápu. Fyrir þann pening fáið þið nammi og snakk á kvöldin, eitthvað að drekka með kaffinu á laugardeginum, verðlaun og leikmuni fyrir Kápuleikana og svo ætlum við að splæsa í útskorna gestabók handa foreldrum Guðrúnar Fannar fyrir lánið á bústaðnum.

Það væri auðvitað best að þið mynduð leggja inn á mig sem fyrst, en í allra síðasta lagi mánudaginn 13.júlí. Reikningsnúmerið er 0302-26-118106 og kennitalan 080182-5389

» 5 hafa sagt sína skoðun

06.07.2009 10:01:01 / ola kally

Leiðarlýsing að Fönninni í Lundskógi

Ákvað að setja inn leiðarlýsingu að bústaðnum, svona meðan ég man :) Allir að prenta út ;)

Keyrið yfir Vaðlaheiði, beygið til hægri í átt að Vaglaskógi áður en keyrt er yfir Fnjóská. Keyrið að brú yfir Fnjóská og inn í Vaglaskóg og strax til hægri. Keyra og keyra út úr Vaglaskógi og við tekur malarvegur. Keyra hann þar til kemur að skilti sem á stendur: Lundskógur. Keyra þann malarveg þar til komið er að skilti sem á stendur Höfðabyggð. Síðan keyriði þar til komið er að bústaðnum Fönninni :) Þá mælir Guðrún Fönn með því að vera bara í bandi við hana (694-6227). Bústaðurinn er við gatnamót, eiginlega hornbústaður og maður keyrir upp dáltið bratta aðkeyrslu.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Dagsetning
10. febrúar 2012
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.